ESAB A/B er stærsti rafsuðu-vöruframleiðandi heims. ESAB A/B var stofnað í Svíþjóð eftir að Oscar Kjellberg hafði fundið upp og fengið einkaleyfi á húðuðum rafsuðuvír árið 1904. Allt frá þeim tíma hefur ESAB A/B unnið stöðugt að þróun og endurbótum á rafsuðuefni og rafsuðuvélum. Á hverjum degi hafa rafsuðumenn um víða veröld upphafstafi stofnandans OK fyrir augum á umbúðunum frá ESAB A/B