Vörur frá öðrum framleiðendum
> Vörur frá öðrum framleiðendum
> Dælur og dælubúnaður
> ESAB Rafsuðubúnaður
> Hitablásarar
> Vökvabúnaður
 
 
 
 
 
Danfoss Logo

Dælur og dælubúnaður

Danfoss hf býður upp á afar fjölbreytt úrval af dælum, allt frá minnstu hringrásardælum fyrir sumarbústaði upp í tröllvaxnar dælur fyrir skólpdælustöðvar. Til þess að geta boðið íslenskum notendum dælur til nánast hvaða nota sem er, höfum við tengst ýmsum fyrirtækjum sem framleiða gæðadælur.

Áhersla og markmið

Danfoss A/S er stærsta iðnfyrirtæki í Danmörku með u.þ.b. 18.200 starfsmenn. Ársveltan er rúmir 2,2 milljarðar evra.

Kjarnastarfsemi Danfoss fer fram á 3 sviðum:
1. Kæli,- frysti,- og loftræsting
2. Hita- og vatnsbúnaður
3. Hreyfiaflstækni
Danfoss stefnir að því að verða leiðtogi á heimsmarkaði á þessum sviðum.

Danfoss leitast við að ná markmiðum sínum með lágmarksnotkun á hráefnum og orku, minnstum áhrifum á umhverfið og sem bestri nýtingu auðlinda.

Það er markmið okkar að uppfylla væntingar allra hagsmunaaðila með því að vera fyrirtæki sem nýtur mikillar virðingar, fyrirtæki sem eykur lífsgæði fólks með því að hafa fullkomið vald á flókinni tækni án þess að missa sjónar á umhverfis- og þjófélagslegri ábyrgð okkar.