Vörur frá öðrum framleiðendum
> Vörur frá öðrum framleiðendum
> Dælur og dælubúnaður
> ESAB Rafsuðubúnaður
> Hitablásarar
> Vökvabúnaður
 
 
 
 
 
Danfoss Logo

Dælur og dælubúnaður

Danfoss hf býður upp á afar fjölbreytt úrval af dælum, allt frá minnstu hringrásardælum fyrir sumarbústaði upp í tröllvaxnar dælur fyrir skólpdælustöðvar. Til þess að geta boðið íslenskum notendum dælur til nánast hvaða nota sem er, höfum við tengst ýmsum fyrirtækjum sem framleiða gæðadælur.

ESAB Rafsuðubúnaður

ESAB A/B er stærsti rafsuðu-vöruframleiðandi heims. ESAB A/B var stofnað í Svíþjóð eftir að Oscar Kjellberg hafði fundið upp og fengið einkaleyfi á húðuðum rafsuðuvír árið 1904. Allt frá þeim tíma hefur ESAB A/B unnið stöðugt að þróun og endurbótum á rafsuðuefni og rafsuðuvélum. Á hverjum degi hafa rafsuðumenn um víða veröld upphafstafi stofnandans OK fyrir augum á umbúðunum frá ESAB A/B

Hitablásarar

Hraðari upphitun


Hið einstaka Air-Venturi kerfi er staðalbúnaður í öllum JAGA hitablás-urum.  Þetta kerfi veldur því að blásarinn heldur afköstum sínum þó útblásturshitinn sé lægri.  Þetta tvennt eykur mjög upphitunarhæfni blásarans og hitadreifingu.  Þetta kerfi býður upp á fjölmargar stýrilausnir.

Vökvabúnaður

SAUER-Danfoss er meðal stærstu framleiðenda vökvabúnaðar í heiminum. Hjá þeim starfa 7.000 manns í 21 verksmiðju í N-Ameríku, Evrópu og Austur Asíu. Framleiðsluvörur SAUER-Danfoss koma ótrúlega víða við. Hér er um að ræða vökvamótora, stjórnloka, stýrisbúnað, dælur ofl. Búnaðurinn er mjög algengur í hvers konar vinnuvélum, gröfum, krönum, skipum ofl.

Danfoss hf býður gírbúnað frá ítalska framleiðandanum Reggiana RIDUTTORI. Hér er um að ræða plánetugíra og hjólgíra fyrir farartæki, spil og til iðnaðarnota.   Reggiana framleiðir einnig vökvabremsur á gíra og vökvamótora. Þeir eru leiðandi í heiminum í framleiðslu á "transmission" gírbúnaði.

Áhersla og markmið

Danfoss A/S er stærsta iðnfyrirtæki í Danmörku með u.þ.b. 18.200 starfsmenn. Ársveltan er rúmir 2,2 milljarðar evra.

Kjarnastarfsemi Danfoss fer fram á 3 sviðum:
1. Kæli,- frysti,- og loftræsting
2. Hita- og vatnsbúnaður
3. Hreyfiaflstækni
Danfoss stefnir að því að verða leiðtogi á heimsmarkaði á þessum sviðum.

Danfoss leitast við að ná markmiðum sínum með lágmarksnotkun á hráefnum og orku, minnstum áhrifum á umhverfið og sem bestri nýtingu auðlinda.

Það er markmið okkar að uppfylla væntingar allra hagsmunaaðila með því að vera fyrirtæki sem nýtur mikillar virðingar, fyrirtæki sem eykur lífsgæði fólks með því að hafa fullkomið vald á flókinni tækni án þess að missa sjónar á umhverfis- og þjófélagslegri ábyrgð okkar.