Vörur frá öðrum framleiðendum
> Vörur frá öðrum framleiðendum
> Dælur og dælubúnaður
> ESAB Rafsuðubúnaður
> Hitablásarar
> Vökvabúnaður
 
 
 
 
 
Danfoss Logo

Vökvabúnaður

SAUER-Danfoss er meðal stærstu framleiðenda vökvabúnaðar í heiminum. Hjá þeim starfa 7.000 manns í 21 verksmiðju í N-Ameríku, Evrópu og Austur Asíu. Framleiðsluvörur SAUER-Danfoss koma ótrúlega víða við. Hér er um að ræða vökvamótora, stjórnloka, stýrisbúnað, dælur ofl. Búnaðurinn er mjög algengur í hvers konar vinnuvélum, gröfum, krönum, skipum ofl.

Danfoss hf býður gírbúnað frá ítalska framleiðandanum Reggiana RIDUTTORI. Hér er um að ræða plánetugíra og hjólgíra fyrir farartæki, spil og til iðnaðarnota.   Reggiana framleiðir einnig vökvabremsur á gíra og vökvamótora. Þeir eru leiðandi í heiminum í framleiðslu á "transmission" gírbúnaði.

Áhersla og markmið

Danfoss A/S er stærsta iðnfyrirtæki í Danmörku með u.þ.b. 18.200 starfsmenn. Ársveltan er rúmir 2,2 milljarðar evra.

Kjarnastarfsemi Danfoss fer fram á 3 sviðum:
1. Kæli,- frysti,- og loftræsting
2. Hita- og vatnsbúnaður
3. Hreyfiaflstækni
Danfoss stefnir að því að verða leiðtogi á heimsmarkaði á þessum sviðum.

Danfoss leitast við að ná markmiðum sínum með lágmarksnotkun á hráefnum og orku, minnstum áhrifum á umhverfið og sem bestri nýtingu auðlinda.

Það er markmið okkar að uppfylla væntingar allra hagsmunaaðila með því að vera fyrirtæki sem nýtur mikillar virðingar, fyrirtæki sem eykur lífsgæði fólks með því að hafa fullkomið vald á flókinni tækni án þess að missa sjónar á umhverfis- og þjófélagslegri ábyrgð okkar.