Danfoss er eitt stærsta iðnfyrirtæki Danmerkur. Alþjóðasamsteypan er leiðandi í rannsóknum, þróun, framleiðslu, sölu og þjónustu á mekanískum og elektrónískum íhlutum fyrir margs konar iðnað.
Danfoss leitast við að ná markmiðum sínum með lágmarksnotkun hráefna og orku, með minnstu mögulegu áhrifum á umhverfið og sem bestri nýtingu auðlinda. Danfoss hefur í áratugi sýnt mikla ábyrgð gagnvart starfsmönnum og umhverfi sínu.